Útlendinga-saga
Myndir
Þau hafa þetta að segja
10.11.2008 15:18:50 / mareneik

mömmuhlutverkið

Jæja þá erum við Jan orðnir foreldrar:)
Það er náttúrulega mikil breyting en æðislegt og spennandi.
Hinsvegar kemur það niður á blogg framleiðslunni (sem ekki var mikil fyrir )þar sem við höfum sett upp heimasíðu fyrir Öglu litlu og ég nenni valla eins og er að halda uppi 2 öflugum síðum...það nefnilega gefst ekki tími fyrir slíkt á milli gjafa , bleyuskiftinga (notum efnisbleyjur og það þarf að skifta oftar á þveim;) ) þrifa , þvotta gráts, huggunar, göngutúra  os.fr.v  en ég er viss um að þegar þetta kemmst upp í vana þá nýtist tíminn betur:) ...eða ég vona það allavega... Endilega kíkið á  síðu Öglu síðu á www.nano.is/agla
Annars þá hef ég lítið að segja annað en agöömússímúdadadahann tumi fer á fætur við fyrstahanagal...os.fr.v
 Knús Maren


» 1 hafa sagt sína skoðun

12.08.2008 10:32:34 / mareneik

wedding and a baby

Jæja, þá er ég gift og ólétt á fertugsaldri:lol: og ég get ekki haft það betra.
Við Jan giftum okkur uppi á Möðrudal þann 2.ágúst í blíðskaparveðri með alla nánustu vini og vandamenn við okkar hlið, ekki vantaði nema örfáa.  Allt var basically geggjað . Veðrið maturinn fólkið, stemmningin og svo náttúrulega allt á seinustu stundu, sem er einmitt eins og ég kann best við það:)
Við vorum þarna alla verslunarmannahelgina í góðu yfirlæti og fórum með útlensku gestina okkar í skemmtiferðir um fjöllin og allir afar sáttir við land og þjóð og atlæti.
Svo er ég á leiðinni heim til Köben þann 22.ágúst for good. Þá er bara að fara í hreiðurgerð og svo eignast litlu þann 13.okt.
Ég skellti nokkrum myndum inn...
Endilega látið í ykkur heyra þar sem ég hef verið svo busy eitthvað við allt og ekkert...
Knus Maren Möller
 


» 6 hafa sagt sína skoðun

19.02.2008 12:40:56 / mareneik

Akureyri er SVEITIN miiiiiin......

Jæja tha er eg sko komin heim og likar bara vel. Reyndar er eg i køben nuna hja loverboj, fekk svo godan dil a express...og mamma vorkennir mer svo mikid ad vera svo langt fra unnustanum ad hun vill alveg gefa mer viku fri sisona:) Annars er eg ekki buin ad gera neitt serstakt sidan eg kom heim til akureyrar annad en ad vinna og vinna...og sofa. thar sem eg tok uppa tvhi ad skella mer i ræktina klukkan 6 a morgnana 4 sinnum i viku. Eg  tharf natturulega minn 8 tima svefn svo eg er alltaf komin i hattinn klukkan 10!! En svona rutina og ad halda mer busy hjalpar til ad gleyma thvi ad eg er svona i halfgerdri utlegt, back to mom ad dad og allt thad..helt sko ad arin 2000-2003 væru thau allra sidustu..en aldeilis ekki...
Annars verd eg ad vidurkenna ad thess ithvælingur a vel vid mig..mer finnst fint ad skipta um umhverfi tho ad jan se ekki hja mer, enda er thad kostur lika, thar sem vid høldum spennunni gangadi a medan:) alltaf eitthvad ad hlakka til og thegar vid erum saman sirka eina viku a 5 vikum tha er bara thvilik hamingja:)
Thessa vikuna er bara stanslaust program hja mer thar sem eg støkk svo fyrirvaralaust i burtu og nadi ekki ad kvedja vini og vinkonur, svo nu er that bara hittingur, matur, kaffihus og sludur stanslaust i 5 daga:)
Allavega, er bara ansi lukkuleg a akureyri og finnst frabært ad fa thjalfun og fæ alveg fullt ad gera...
Kikid i hemsokn..er ekki med sima..bara heima 4625445.
Luv maren



» 1 hafa sagt sína skoðun

21.01.2008 00:03:39 / mareneik

not dead but close

nema hvad...

er komin heim og ædi..buin ad fa vinnu og hætt i vinnunni..allt geris a mega hrada hja mer:( thau gatu ekki radid mig eftir allt..suckers. En thad er bara cool..ætla seinnilega heim i næstu viku og fa thjalfun hja mømmu a samson...cool og ekki cool. en svona er thetta. Eg vil thjalfun hja aveda og Palma gat ekki radid mig tha thydir thad ad eg verd ad fara heim hja mamma aveda. Vonandi ekki lengur er 5 manudi. Meina eg ad fara ad gifta mig i agust...og jan greiid fær ekkiert ad sja mig fram ad giftingu..nema i frium og vonadi eihverjar helgar...haha..ef hann vill mig thratt fyrir allt thetta..tha nattlega er hann worth while...og greinilega eg lika;)

Allavega ..eg er i miklu tomarumi akkurat nuna...buin ad koma mer svo vel fyrir og svo tharf eg ad fara aftur!! eg var ekki vidbuin...

gott ad eg er bara 30 ara ..ekki 40 ara..eda eitthvad..veit samt ekki af hverju thad er betra......eg eidi miklum tima i allskonar rettlætanir i augnablikinu...sorry.

Sjaumst a akureyri:)


» 3 hafa sagt sína skoðun

22.11.2007 00:47:10 / mareneik

ó

Hæææææææ......úff.

Það er nú ekkert auðvelt að reyna að halda uppi bloggi. Það þýðir að ég þarf að blogga....Annars er ekkert að frétta. Nema kannski að ég er að koma heim...DONE...OVER IT....Kem heim 10.des..heim as in Kaupmannaöfn. og svo Ísland 17.des. Ég mun gista hjá Völu eina nótt...Vala....ég gisti hjá ykkur eina nótt?ikke oss?

Allt er búið að ganga ljómandi vel...í skólanum og persónulífinu. Jan kom í heimsókn í október og við fórum í smá ferðalag norður og löbbuðum útí skóg og sona. Hmm...ég á ekki eftir að sakna neins hér...allir að spurja mig. Ég lofaði Tom að sakna hans...

Úff..ekkert að frétta...Held ég setji bara inn myndir og láti það duga...Halloveen, Zombie fashionshow..Michigan...

Sjáumst á Íslandi..

Bæææææææ...


» 4 hafa sagt sína skoðun

29.08.2007 23:47:37 / mareneik

nýjar fréttir

jæja. Thað vita vist allir um þessa blessuðu brú og því tímabært að koma með nýjar fréttir. Nema hvað að ég er orðin 30 ára og takk fyrir allar kveðjurnar og vala og ella voru svo hugulsamar að senda mér blóm og súkklaði!!!  Ég hélt upp á ammælið mitt á laugardeginum heima hjá Tom vini mínum og bauð ég um 15 manns. Þetta var náttúrulega mikið stuð og dönsuðum við fram á rauða nótt!!! Ég gerði einhverja smárétti og kokteila og laggðist það vel í mannskapinn. Svo fékk ég kareokí græjur í ammælsigjöf frá Mörtu og Tavo!!! að v´´isu missti svo Tom græjurnar í götuna og braut þær svo ég veit ekki enn hvort þær virki...brotnaði bara þar sem batteríin faraí...sem er nú í lagi þar sem ég efast um að þetta verði aðal stuðgræjurnar í næstu útilegu..sjáið þetta ekki fyrir ykkur..ég og Jan ...boundary waters...friðstillt náttúran....fuglasöngur og trjániður..og ég að singja í kareokí..hahhahah..HAHAHAH...held að jan myndi hætta við að giftast mér ef ég stingi upp á að taka græjurnar með..hey jan verðum að muna að kaupa batterí í kareokígræjurnar....muahhhhh

Anyways...svo fékk ég hring frá Jan úr tré..eikartré!! rosa flottur..sagði honum að ég vildi ekki hring nema hann væri úr tré...svo hann fann þá á www.simplywoodrings.com

Hmm..ég er orðir rokkstjarna og módel. .....ég var nebblega beðin um að vinna á Masterjam (ein af stærstu AVEDA show unum) Þarna voru aðal stjörnur AVEDA mættar til að syna hæfileika sína á sviði og kenna nyjustu klippitæknina. Nema hvað að einn af kennurunum bað við um að vinna "backstage" .VEi ég og 2 aðrir nemendur vorum þess heiðurs aðnjótandi að vera backstage og ég var gerð ábyrg fyrir að setja stóla á sviðið og taka þá af sviðinu á meðan á sýningunni stóð..sem og ég þurfti að afhenda 2 verðlaun. VEI þetta var mjög gaman..nema að ég var svo þunn eftir veisluna mína fínu...að ég var um það bil að æla á sviðið nokkrum sinnum. Ég var ekki stolt af mér að mæta þunn á svona stóran event..en what can I do... þetta skánaði eftir 2 tíma..held ég hafi haldið andlitinu... Svo í oktober er ég að taka þá tt í tískusýningu sem heitir Dead sexy!!! ÞEtta er Zombie tíska:) Ég þarf að labba eins og Zombie!!! ég verð m.a Lara Croft Zombie!! get ekki beðið. Jan er einmitt að koma þetta sama kvöld og sýningin er....

 Annað er held ég ekki að frétta í bili..tíminn líður rosa hratt og mamma er að koma í heimsókn í sept og jan í okt....og allt er að verða vitlaust í skólanum. 

Ég er byrjuð að fara út að hlaupa..við Tom rekum á eftir hvort öðru....

Nóg í bili,

astalapasta

Maren Croft


» 5 hafa sagt sína skoðun

02.08.2007 23:09:01 / mareneik

Brúin hrunin

Þið hafið kannski séð það í fréttunum að 35W brúin í minneapolis hrundi í gær klukkan 18 rétt eftir skóla. Brúin er staðsett rétt hjá þar sem ég á heima og ennþá nær skólanum. Fullt af krökkum úr skólanum voru nýkomnir yfir og aðrið rétt ófarnir yfir þegar hún hrundi. Ein stelpa úr skólanum dó og 2 slösuðust. Ég ég var nú bara rétt komin heim og var að spjalla við Jan þegar ég tek eftir miklum látum í þyrlum og svo hringir vinkona mín og spyr hvort ég sé örugglega seif. Ég hjóla oft undir brúnni en ekki þennan dag, sem betur fer. Náttúrulega gat ég ekki látið vera með að stökkva út og hjóla niður að á og fylgjast með. Það var eðlilega fullt af fólki, ég var þarna á þessari sömu brú 4.júli að horfa á flugelda, held það hafi verið meira af fólk í gær en þá. Allavega þá er gott að vera á hjóli en ekki bíl því það gengur EKKERt í umferðinni hér.  ENGINN hringdi í mig frá íslandi né danmörku að tékka hvort ég væri á lífi, það er mikil huggun í því á þessu erfiðu tímum. Allavega fyrir þá sem voru afar áhyggjufullir hvort ég væri í lagi, en tölvan virkaði ekki og síminn var batteríislaus.. þá hef ég það fínt nem missti doldið svefn vegna láta í björgunarþyrlum sem sveimuðu yfir húsinu mín. (kaldhæðni)  

Annars er lítið annað að frétta, við Jan erum á fullu í að plana brúðkaupið, og ákveða hverjum við viljum bjóða og sona. Komums að þeirri niðurstöðu að við getum nú ekki boðið öllum sem við þekkjum svo við munum sennilega bara bjóða þeim sem hafa heimótt okkur eða hringt í mig síðastliðnu 5 1/2 mánuð. Sem og þeim sem muna eftir 30ára afmælinu mínu þann 23. ágúst. (ekki kaldhæðni) :)

Kveðja til allra. Frú Möller

 


» 14 hafa sagt sína skoðun

28.07.2007 03:24:48 / mareneik

Heimt úr helju...

Jæja, welcome back. Til að gera langa sögu stutta þá erum við Jan búin að trúlofa okkur. vei vei. Hann skellti sér á skeljarnar eftir erfiða canue ferð á Boundary waters með handtínd blóm, voða sætt:)

Hann semsagt kom í heimsókn og við áttum saman æðislegar 2 vikur í fríi bæði hér í Minneapolis og svo í viku á landamærum Kanada og Minneapolis (Boundary Waters). Þetta var mikil æfintýraferð þar sem við vorum bara tvö á canue í viku. Við sigldum á milli vatna og skiptum um gististað á hverri nóttu. Þetta er friðað náttúrusvæði svo þarna eru engin skilti né vélbátar , og sáum við nánast ekkert fólk í þessa 6 daga. Við vorum bara með kort sem inn á voru merkt hvíldarsvæði og svo vara bara að ramba á réttan stað. Við sáum Bjóra, erni, elgi og fullt af öðrum fuglum og smádýrum, en ég engan björn, þó þeir séu ansi vinsælir á þessu svæði. Engu að síður var ég með hjartað í brókinni allan tímann og átti erfitt með að sofna sökum allra hljóðanna frá skóginum og möguleikunum á að Bjössi kíkti við . Þeir nefnileg renna á lyktina, en við höfðum hengt allan mat upp í tré svo við sáum sko við honum...en sama er...bara hugsunin um að hann kíkti í kaffi gerði mig afar órólega. Sem betur fer svæfðu hroturnar í Jan mig á endanum:klikk: Við fengum geggjað veður í 3 daga en svo rigndi og voru þrumur og eldingar og máttum við oftar en einusinni bjarga brókum okkar og sigla í land og flýja undir bátinn til að nokkurnveginn halda farangrinum þurrum. Svo kom sem beturfer alltaf sól í einhverntíma og þá náðum við að þurrka allt..áður en það blotnaði í næsta úrhelli. Einu sinni þegar við vorum úti á miðju vatni að fylgjast með Arnarmömmu kenna ungunum sínum að fljúga komu svo mikið af eldingum rétt hjá að við máttum fara í land til að hreinlega ekki verða að skotmarki..þarna úti á miðju vatni..úff. Eldingar eru bæðövei helsti valdur skógarelda þarna, og gengum við í gegnum einn brunninn til grunna. Ég kunni vel við mig í brunarústaskógi..því þá var ég ekki eins hrædd um að Bjössi stykki óvænt í veg fyrir mig8| (líkurnar voru þó afar litlar)

Allavega geggjuð ferð, full af æfintýrum, adrenalíni, dýrahljóðum, sól, þrumum og eldingum...já og rómantík:lol:

Stútfullt af myndum hér að neðan (til vinstri)

Minni ég svo fólk á Skype og svona , og vera ready fyrir brullaup næsta sumar.

Love Maren


» 9 hafa sagt sína skoðun

07.06.2007 03:05:56 / mareneik

Everything You Ever Wanted to Know About How to Protect Yourself from Bears

oh. Ég er alltaf búin að gleyma bitastæðu sögunum þegar ég loksins nenni að blogga...en hvað viljiði helst heyra? djammsögur, skotárásir, nágrannamál, skóladrama...Allavega þá var ég með mega partí um helgina og var Rock anthems diskurinn minn í mikluuppáhaldi partýgesta. Þetta var semsagt kveðjupartý fyrir Kelly vinkonu mína sem er að flytja til Íslands ..og svo Hollands, á ég eftir að sakna hennar mikið. Nú ....ég keypti mér vinnuskó í dag....djíses ég gefst upp. ...jú ók, ekki sjá Dream görls, algjört boring. Það er tornado viðvörun í minnesota í kvöld, sem er til þess að ég nenni ekki á dj kvöld með Kelly og Jennifer...enda líka 8 árum eldri en þær og þarf 4 tímum lengri svefn!!!! var líka að koma úr molloffameríka, ekki beint mikil orka eftir svoleiðis djamm, úff...þarna er saman komið feitasta fólk ameríku held ég....ekki það ég hafi neitt á móti feitu fólki...verð í framhaldi af þessu að nefna að Jan Möller hefur misst 10 kíló síðan hann var hjá mér seinast..mér ÓVART varð á orði að hann væri nú orðinn heldur "búlduleitur"....og kannski mér hafi líka orðið eitthvað á orði með að júnó að þú veist að ef búlduleita yrði mikið búlduleitara...gæti alveg eins verið að júnó áhuginn á....bíóferðum yrði ekki eins... mikill....ööö...ég orðaði þetta eins pent og ég gat...en allavega til þess að vera on the safe side fór Jan að gera magaæfingar og armbeygjur á hverjum morgni og köttaði út kvöldmáltíðina....semsagt orðinn grannur með magavöðva:) ofáná hvað hann var nú sætur og myndarlegur...semsagt Mr. ómótstæðilegur. Allavega ...voðalegt hvað hann eitthvað er þrjóskur og þegar hann ákveður eitthvað..maraþon, 200 magaæfingar á kverjum morgni enginn kvöldmatur, þá bara stendur hann við þetta...á meðan ég ákveð jóga og kaupi allar græjur og tíma í ræktina..en læt það oftast duga..án þess að mæta í tíma vot só ever!!! (er reyndar að drepast í bakinu og get hvorki hreyft legg né lið)

Úff... niðurdrepandi þessar fréttir hér í júsei. Annað en íslenskar fréttir..Kalli Bjarna og sona. Óttalegur auli er hann nú...

Jamm. Semagt þá er Jan að koma 29.júí til 17 júlí og höfum við breytt okkar plönum og ætlum við að taka stefnuna á Boundary Waters http://www.quietjourney.com/camp.html sem eru vötn/ár á landamærum Kanada og Minnesota. Þar ætlum við að ferðast á kæjukum og rölta hóla og skóga og vonadi elta uppi svartabirni og fjallaljón ..þetta verður 8 daga ferð. Þetta verður að öllum líkindum mikil svaðilför en verið alveg róleg ..Jan var skáti allan sinn barndóm auk þess sem hann fór í lýðháskóla uppi í fjöllum noregs þar sem hann lærði survival of the fittest tæknina ..ekki bara einusinni heldur tvisvar..sem aðstoðarkennari í annað skiptið. Svo ég verð í góðum höndum og ekkert að óttast...en ef þið viljið getið þið róað taugarnar og lesið Bear safety reglur fyrir Boundary waters http://www.troop111.org/bear.html

Altílæ Maren


» 4 hafa sagt sína skoðun

11.05.2007 03:32:32 / mareneik

úffff

já já já okokok ég er farin að æfa fótbolta...eina ferðina enn. ÉG fór samt bara í sakleysi mínu út að hlaupa og sé þá 3 unga pilta fallega og væna vera að sparka á milli. Ég spurði hvort þeir vildu leika og nema hvað til að gera stutta sögu langa...:$þá er ég farin að spila með lpbd minneapolis eða homma og lespíuliðinu minneapolis. Þjálfarinn sagði að allir væru keng júnó en ég þyrfti ekki að vera það. Semsagt mér líður eins og laumufarþega á æfingu en engu að síður hef ég aldrei spilað með jafn skemmtilegu liði. Við spilum tvisvar i viku frá 18.00 til það er of dimmt til að sjá boltann. Svo buðu þau mér að spila með strákaliðinu8| sé nú ekki pojntið með að kalla þetta strákaliðið....en við sjáum til...ég reyndar var illilega minnt á það að ég verð 30 í ágúst þar sem ég gat ekki gengið daginn eftir og þurfti að sleppa skóladeginum:cry: og liggja flöt í sólinni í staðinn. Sleit semsagt eitthvað mikilvægt í mjöðminni...(ok..smá íkjur) en haltra samt enn í dag 2 dögum seinna. Nóg um það..ég er að verða vitlaus á sumum stelpunum í bekknum þær tala STANSLAUST um EKKERT og eru svo dramatískar í öllu lýsingum og tilfinningum og taka ÖLLU svo persónulega og þola ENGA gagnrýni og hafa ENGA sjálfsgagnrýni og ÞOLA ekki suma kennarana því þeir eru svo DÓNALEGIR og HREINSKILNIR:!: djíses kræst og þetta á basikalli við allar stelpurnar í bekknum nema mig og 2 aðrar8) Hvað er eginlega málið..allir þurfa svo voðalega eitthvað að vera kurteisir og tipla á tánum í kringum alla, enginn má styggja annan eða segja það sam hún meinar, held að þær ættu aðeins að losa á g strengnum og sýna smá karakter og vera skítsama um hvað aðrir segja, halda og meina!!! ég er að fíla alla kennarana þótt þeir séu sjálfsumglaðir og segi nákvæmlega sem þeir meina!!! Svoleiðis á fólk að vera goddemn it!!!!  Nema hvað ég lamupokast ein út í park í hadeginu með nesti og nýja skó og nýt þess að heyra EKKERT nema fuglasöng og börn að leik.sem audvitað fær stelpurnar til að halda að mér líði eitthvað illa...og öðum til að hugsa að ég nenni ekki að hanga með þeim...u guess right! ENGU AÐ SÍÐUR finst mer mjög gaman:D Finnst námið skemmtilegt og finnst ég ógó góð og svo er ég bara eitthvað svo bjartsýn og jákvæð að ekkert truflar mitt jafnvægi nema akkúrat þegar ég þarf að hlusta á ákveðnar "samræður". Anywho....svo er ég ekki ða fíla að á meðan á þessari færslu hefur staðið hef ég drepið 4 flugur/pöddur, ein slapp sem var á stærð við stórutána á mér...(8|...örugglega kakkalakki) HJÁLP!!!!!! bíta þeir ha? bíta þeir? bera þeir smitsjukdóma..kynsjúkdóma...ég sef á gólfinu..hver veit nema þeir skríði þar sem sólin ekki skín og smiti mig af einhverju gróss. (hef þá góða afsökun:$ djók:))

Annars greinilegt að það líður að kosningum heima:$allir með það á hreinu ekki satt?, allir að muna að kjósa:lol:...var að horfa á silfur egils nebblega...ekki það að ég sé manneskjan til að ræða pólitík (hef kosið 2svar um æfina..usss) en hérna voðalega eru allir eitthvað ósammála um allt og allt að verða vitlaust bara....hélt að þetta væri ekki flóknara en það við eigum öll að reyna að vera vinir, ekki spreða klósettpappír, ekki láta vatnið renna meðan við bustum, ekki vinna of mikið lifa of lítið, ekki einkavæða auðlindir, ekki taka af þeim fátæku og gefa þeim ríku,  ekki girnast konu nágrannans..... þetta segir sig allt sjálft.

P.s pirringur dagsins á sér mánaðalega skýringu....tími mánaðarins þegar brjóstin 3faldastærð sína og súkkulaðiát fer yfir hættumörk.

farin á pödduveiðar. Góða nótt.


» 2 hafa sagt sína skoðun

26.04.2007 01:03:01 / mareneik

frábærir nágrannar

Jæja, héðan allt gott að frétta. Er byrjuð í Alpha 1 bekk, sem þyðir að ég er farin að klippa, lita og perma borgandi kúnna!!! Í síðustu viku græddi ég 25 $ í tips sem er helv gott, sérstaklega þar sem ég á 35 þús krónur sem þurfa að endast mér í 8 mánuði..utan leigu. Svo ég tek á móti donation, check á 634 pierce street. Ég er öll í donation sjálf, rölti um hverfið og safnaði rusli með samnemendum mínum í morgum þar sem month of the earth er í gangi og mætti ég í skólann á frídegi og klippti kúnna...reyndar var ég í bak og handa nuddi og þar sem voru svo fáir kúnnar lét ég mig hverfa eftir klukkutíma. Í staðinn hjólaði ég um borgina og endadi svo í parki þar sem ég sleikti sólina, las bók, dagdreymdi um hús uppí fjalli og hlaupandi börn, inn á milli hristi ég maura af nýja picknick teppinu mínu og að lokum við sólarsetur og sólarsting horfði ég á baseball leik og fékk eiginlega meiri athygli en leikurinn þar sem þetta var sennilega lókal leikur í unglingadeild og allir að spá í hvaða gella þetta væri sem mætti í kjól og á hjóli með bók (og people magasine), m&m og picknick teppi í hjólakörfunni..anyways, áfram...who ever.

Svo var ég sökuð um stuld á unglinganærfötum og sokkum af konunni á neðrihæðinni. Við semsagt deilum þvottavél og þurrkara. Eg þvoði mitt og þurrkaði en setti hennar þvott ofan á þurrkarann því að sjálfsögðu átti hennar þvottur sennilega að úldna þarna inni eða ganga frá sér sjálfur... nema hvað dóttirin bankaði og spurði hvort ég hefði tekið þottinn hennar, nóp not mí svaraði ég um hæl. Svo kom mamman og vildi tala við Kailu sem ég bý með (pabbi hennar er landlordinn), feita og illalyktandi hvite trash á well fair (munnsöfnuðurinn frá Mæju) og sagði að þvottur dótturinnar væri horfinn, well lady I dont use other peoples underwear plus I would not fit it if í wanted to!!! so u now im sorry...cant help you. Semsagt hún fór viss um óheilindi mín. Anyways aldrei gaman að vera þjófkennd þó mér hafi fundið þetta fyndið..meina.. hver stelur nærfötum (Sennilega slitnum og teigðum..ekki það að ég hafi tékkað)... nóg um það. Svo fór ég í jóga eftir skóla í dag og var við að deyja. þetta var powerjóga í upphituðum sal...og þar sem ég á bara eitt  handklæði, 5 nærbuxur til skiptanna(auk nærbuxna af neðrihæðinni), einn hlýrabol, einar jógabuxur buxur og nágranna sem sakar mig um stuld í hvert skipti sem ég þvæ þvott...þá neyddist ég til að þvo allt í höndunum....því ég ætla aftur á morgun. Ayways.

Nóg af bloggi..allir sennilega hættir að lesa hvort eð er!! sendið nú kveðju á mig...og verið á skype á sunnudögum.

P.s fékk meil frá gömlum "kærasta" sem ég kalla Piers, fyrir þá sem ekki þekkja til han þá hafði hann 9 piersing í júnóvottinu..hann semsagt ný orðinn 30 og fann sig tilkallaðann til að senda mér langt meil um  "seka samvisku" basically sorry yfir því að við séum ekki saman lengur.....ekkert að vera sorry yfir vinur minn...ef aðeins bara færri eiturlyf, færri tölvuleiki, hærri menntun en 9 bekk, vinnu og minni sjálfseiðingarhvöt þá værum við pottþétt gift með 3 börn.

Seejaleiter 


» 9 hafa sagt sína skoðun

12.04.2007 13:29:35 / mareneik

I belive I can fly

HÆHÆHÆHÆHÆ....

ég er hér enn. Jan bebí var hjá mér um páskana 11 daga, sem var æði. Við hjóluðum um allt og svo um páskana fórum við norður í minnesota og vorum við Lake Superior sem er stærsta vatnið í USA. Við vorum á luxos hóteli með sundlaug og allt og útsýni yfir vatnið úr herberginu okkar!! æði!! best var samt að við sáum reglulega Erni svona Boldeagles , hef ekki hugmynd hvað þeir heita á íslensku...en jeminn ég fæ alveg svona...I belive I can fly, I belive I can touch the sky tilfinningu þegar ég sé svona fugl..anyways. NEma hvað að á heimleiðinni ákváðum við að keyra í gegn um Indjánasvæði, tékka aðeins á þeim og var ég að vona að þeir hlypu um naktir með fjaðrir í hárinu ( hef alltaf hef thing fyrir indjánum og örnum) nema hvað að við kerðum um en sáum ekki neitt indjánlegt hvorki fólk né hesta né fjaðrir. Ég var frekar ósátt og pirruð yfir þessu öllu að ég pirraðist við jan yfir því hvað hann keyrði hægt...eðlilega kom bíll og tók framúr okkur á miklum hraða, þegar við litum á bílinn voru þar þá ekki indjánastelpur um 100 kíló hvor með klút á hausnum, ekta indjánar:) nema hvað að báðar gáfu okkur drápsaugnaráð og löngutöng...djís. Okey Jan keyrði kannski á löglegum hraða en þetta var nú ekki alveg sem við áttum við með að sjá indjána..við semsagt yfirgáfum indjánasvæðið frekar skúffuð og niðurlægð...ég hef samt ekkert á móti Örnum...Ernum......

Þegar ég les blogið yfir..þá er ekki laust við að ég hljómi með fordóma, en það var ekki meiningin... 

Later


» 0 hafa sagt sína skoðun

26.03.2007 23:39:09 / mareneik

26 stiga hiti

jesus...það eru búnar að vera 26 gráður hér í minneapolis síðustu 2 daga, einmitt dagana sem ég var í fríi, svo ég er búin að hjóla um allt á nýja hjólinu mínu sem ég fann...

Allavega ætlaði bara að segja frá þessu veðri hér...frekar skrítið samt ...þar sem allt var í snjósköflum fyrir 2 vikum...og ekkert er orðið grænt og engin blóm..nó nothing ...það fer samt að kólna aftur..þegar jan kemur...UM HELGINA !!! vei!!!!!!!

Annars ekkert að frétta..bara veðurfréttir:)

Leiter....


» 3 hafa sagt sína skoðun

12.03.2007 01:56:17 / mareneik

rokk og ról

Hæhæ allir og takk fyrir góð komment. Af mér er sem ævinlega allt gott að frétta og er ég komin í sumarskap. Hér er farið að hlýna þó skaflarnir séu eihvað að þrjóskast við og pollar það djúpir að vöðlur eru málið. Ég er búin að læra margt og mikið í skólanum og búin að hafa 5 testmódel og allt gekk vel þó mér finnist nu ekki sérstalega flott að setja boring perm í þunnhærða stelpu, en þetta varð ég víst að æfa. Mest æfi ég mig eftir skóla og klippi vini mína hér sem sýa mér ótrúlegasta traust go bara do what ever. Ég er náttlega so súper hipp og fashionable að það nær ekki nokkurri átt. Svo er ég frá íslandi /danmörku og það virðist vera að gera það fyrir alla hérna. Var ég annars búin að minnast á hvað allir eru vingjarnlegir hérna í minneapolis...hér er ekki hurðum skellt í andlitið á mér og þegar ég er keyrð heim, þá er beðið eftir að ég er komin inn, með að keyra í burtu, bara ef ég hefði gleymt lyklinum!! og svona fram eftir götunni.

Ég er semsagt búin að eignast góða vinkonu hana Amie snjóbretta og mótorjólagellu með bakið og handleggi coverað í tattúum og prósnjóbrétta kærastan hennar þau eru bæði alveg frábær og eigum við eftir að gera margt og mikið skemmtilegt saman. Amie er með mér í bekk og er ein af fáum sem vita eitthvað um hvað er að gera í heiminum fyrir utan Ameríku. Ég fór með þeim á bretti um daginn sem bæðö vei var hin fínasta brekka á stærð við barnabrekkuna í hlíðarfjalli en engu að síður skemmtum við okkur vel og ég læri trikkið butter my donut(misskiljist ekki).

Fyrir þá sem vilja vita af honum Richard fyrsta vini mínum hér í úsa þá hefur hann það gott en er að vinna mikið og höngum við því ekki eins mikið saman lengur, auk þess sem hann er mikið dramaqueen og er ég ekki góð í að vera mikið í miklu drama...anywho...

Jan beibí er að koma í heimsókn efir 20 daga og get ég ekki beðið. Og vil ég koma á þakklæti við þá sem uppföttuðu skype, headphones og síðast en ekki síst webcameruna.

Tóta og aðrir, þið eruð ávalt velkomin í heimsókn og hér er víst geggjað á sumrin rosa hlýtt og fullt af vötnum með strönd og alles. Minni ég á beint flug með icelandair;)

Kær kveðja til allra líka bumbubananna Stína og Þórunn...og svo nýjasta bumbubananas hennar Írisar frænku:) ég hringi við tækifæri.

knus Maren


» 6 hafa sagt sína skoðun

25.02.2007 19:00:38 / mareneik

Þorrablót

Jæja ...ég skellti mér á þorrablót íslendingafélagsins í Minnesota í gærkvöldi. Þar var matreittur dámsamlega norskur /bandarískur þorramatur sem samanstóð af norsku háfjallahangikjöti sem bragðaðist eins og skinka, norsksviðasulta með kanil held ég bara, ýmisleg dönsk síld, kúlli í barbeque, danskt rúgbrauð. Það var ekki fyrr en ég gúffaði í mig soðnum þorski og harðfiski og laumaði íslenska fánanum í balltöskuna að þjóðernistilfiningin vaknaði og ég varð stoltur íslendingur í Minnesota.

Við vorum þarna 4 saman ungafólkið, annars voru þarna komnir saman gamlir vesturfarar os sveimér þá þá hörfðu sumir aldur til að vera upprunalegir vesturfarar frá 18 öld. Nema hvað við vorum kynt höfðinglega og svo beðin um  fara upp á svið og vera forsöngvarar. Það var nú lítið mál fanst okkur nema hvað að ekkert okkar gat sungið í þóntegundinni sem píanókallinn spilaði svo "fyr var oft í koti kátt" hefur munad daga sina fegri. Svo las sendiherafrúin ágæta upp ísleska textann fyrir gestunum á íslesku og þýddi svo yfir á ensku og svo sungum við..."Ríðum ríðum rekum yfir sandinn" this is about the icelandic men in he oldays who were riding their horses over the sand very fast because thei vere afraid of the Hldufólk...

ANYWAYS þetta var rosa stuð...eg hef aldrei sagt sögu mína svo oft á 2 tímum með stíft kurteisisbros á vörum, og endurtekið hana svo fyrir sama fólkinu allavega 2svar því þegar þau höfðu spurt 4 mann hvað hefði dregið hann til Minneapolis þá hafði það gleymt hvað dró mig þangað...djíses.

Anywho skelltum í okkur norsk ameríska þorramatnum hlustuðum á tónlistarmenn í norskum ullarpeisum spila að ég held íslenska harmonikkutónlist, skellt í okkur ákavítinu og glassi af gini og tonik, fannst okkur nóg komið af veisluhöldum enda líka flestir farnir í háttinn fyrir níu. Ákváðum við að skella okkur á Gay 90s þar sem við skemmtum okkur dásamlega á dragsjowi , þrátt fyrir að staðurinn var hálftómur vegna sjóstorms sem geysaði útifyrir.

Kvöldið endaði klukkan 12 , en ég mun seint gleyma því...sennilega helst vegna þess að ég gaf sendiherranum emailið mitt og símanúmer!! Well...við vorum eins og fyrirmenni í þessari veislu og ég gat nu ekki verið með móral og fyrirlæti og lofaði að vera sambandi og aðstoða vesturfarana við að varðveita íslenska arfleið...úff.

Annars hef ég það ansi gott, nóg að gera og sona. hér snjóar og snjóar og allt á kafi.

ég datt á rassinn í skólanum í gær fyrir framan alla og ég meiddi mig í öklanum og bakinu. stoltið pínu sært líka, auk þess sem ég var í kjól! nvermind.

Knus til allra þangað til næst.

Kveðja Maren


» 6 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 5